Þjónustumiðstöðvarnar fagna tíu ára afmæli

Velferð

""
Í ár fagna þjónustumiðstöðvarnar í borginni tíu ára afmæli en þær eru sex og þjóna öllum hverfum; Árbæ, Grafarholti og Úlfarsárdal, Breiðholti, Grafarvogi, Laugardal og Háaleiti, Miðborg og Hlíðum og Vesturbæ.
Forsögu þjónustumiðstöðvanna má rekja til fjölskylduþjónustu sem sett var í fót í Miðgarði í Grafarvogi árið 1997 og til samþykktar í borgarstjórn sumarið 2002 um að auka nærþjónustu í hverfum. Áður höfðu fulltrúar Reykjavíkurborgar kynnt sér starfssemina í norrænum frændgarði,  m.a. Osló, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn, sem leiddi til þess að skipuð var nefnd um stofnun þjónustumiðstöðva í byrjun árs 2003, og síðar stýrihópur sem lagði til opna þjónustumiðstöðvarnar árið 2005.


Markmiðið var að auka aðgengi íbúa að þjónustu borgarinnar og að þeir gætu snúið sér á einn stað í sínu hverfi með erindi sín. Þannig mætti samþætta verkefni og búa borgaryfirvöld undir að taka við fleiri verkefnum frá ríkinu, auk þess að eiga betra samstarf við íbúa, frjáls félagasamtök og aðra grasrótarstarfsemi í hverfunum. Könnun hafði áður verið gerð og sýndu niðurstöður hennar að 90% Reykvíkinga voru fylgjandi stofnun þjónustumiðstöðva í hverfum.  Samhliða opnun þjónustumiðstöðvanna varð til þjónustu- og símaver og vefsvæðið Rafræn Reykjavík þar sem íbúar gátu stundað viðskipti sín við borgina rafrænt.


Hjá þjónustumiðstöðvunum er hægt  að sækja alla almenna þjónustu borgarinnar, s.s.  húsaleigubætur, fjárhagsaðstoð, heimaþjónustu og sérfræðiþjónustu skóla.


Íbúasamsetning í hverfunum hefur orðið til þess að þjónustumiðstöðvarnar hafa ólíkar áherslur í starfi sínu. Aldursskipting íbúa er ólík eftir hverfum og t.d. hefur þjónustumiðstöð  Laugardals og Háaleitis sérhæft sig í þjónustu við eldri borgara en meðalaldur er hærri þar en annars staðar í borginni. Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða hefur lagt áherslu á málefni utangarðsfólks og hælisleitenda og í Breiðholti er fjölmenningin í brennidepli, en þar er hlutfall tvítyngdra barna og innflytjenda hærra en annars staðar.


Í tilefni tíu ára afmælisins efnir velferðarsvið til málþings í Ráðhúsi Reykjavíkur, föstudaginn 11. desember,  þar sem rætt verður  um reynsluna af starfi þjónustumiðstöðvanna, stöðu þeirra og þróun í þjónustu borgarinnar.