Sækja þarf um ný leyfi fyrir götu- og torgsölu

Stjórnsýsla Umhverfi

""

Ný úthlutun á leyfum fyrir götu- og torgsölu hefur verið auglýst, en opnað verður fyrir umsóknir mánudaginn 16. mars kl. 9.00  á vef Reykjavíkurborgar.  Eldri leyfi falla úr gildi 15. maí.

Götusala er leyfisskyld og tekur til hvers kyns sölustarfsemi sem fer fram á almannafæri utanhúss svo sem á torgum, gangstéttum og í almenningsgörðum. Ekki þarf þó að sækja um leyfi fyrir tombólum barna og ungmenna.

Vilja efla mannlífið við Bernhöftstorfu

Götu- og torgsala á að auka fjölbreytni og þjónustu í sátt við umhverfið. Sóst er eftir fjölbreyttri þjónustu samhliða því sem gerðar eru kröfur um góða umgengni og að starfsemi standist allar heilbrigðisreglur.



Nýjar reglur voru samþykktar í borgarráði um miðjan janúar sl. Lögð verður aukin áhersla á sölusvæðið við Bernhöftstorfu og er unnið að því að gera það meira aðlaðandi. Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar hefur verið virkjaður til þess verkefnis.

Markaðir og söluvagnar

Samkvæmt nýju reglunum eru nokkrar tegundir leyfa:

  • Markaðssala einyrkja er leyfi fyrir um 5 fermetra svæði á borgarlandi. Sala er heimiluð frá kl. 9.00 - 21.00. Leyfi eru veitt í einn til þrjá mánuði.
  • Markaðssala stærri viðburða er heimild fyrir margvíslega markaði. Skilgreina þarf í umsókn óskir um landsvæði, stærð þess og staðsetningu, tímalengd afnota, fjölda söluaðila, vöruframboð, útlit og umgjörð sölustarfsemi.
  • Dagsala í miðborginni er söluleyfi fyrir söluvagna eða sölubifreiðar á skilgreindum dagsölusvæðum. Sala er heimiluð frá kl. 9.00 - 21.00.
  • Hverfasala er dagsala á borgarlandi í hverfum utan miðborgarsvæðisins og geta allt að 5 söluaðilar verið samtímis með leyfi á sama hverfasvæði. Um sölubifreiðar gildir sú meginregla að þær má aðeins staðsetja á bílastæðum.
  • Nætursala er sala úr söluvögnum eða sölubifreiðum á skilgreindum svæðum frá kl. 22.00 - 4.00.

Skilgreiningar á svæðum er að finna á upplýsingasíðu um götu- og torgsölu – reykjavik.is/gotuogtorgsala. Gildistími leyfa er frá einum upp í tólf mánuði og í nýju reglunum er möguleiki á að endurnýja dag- og nætursöluleyfi til allt að þriggja ára. 

Leyfin gilda ekki á borgarhátíðum eins og 17. júní, Menningarnótt og Hinsegin dögum í Reykjavík, en um þær gilda sérstakar reglur sem Höfuðborgarstofa setur og sækja þarf um fyrir hverja hátíð fyrir sig.

Jafnræði við úthlutun

Umsóknir verða afgreiddar í þeirri röð sem þær berast og ræður það forgangi við úthlutun. Reglan „fyrstur kemur fyrstur fær“ er þannig í gildi og skapar ákveðið jafnræði með umsækjendum. Eins og áður segir verður opnað fyrir umsóknir um götu- og torgsölu mánudaginn 16. mars kl. 9.00 á „mínum síðum” á vef Reykjavíkurborgar (Rafræn Reykjavík).  Þetta fyrirkomulag er kynnt með góðum fyrirvara svo umsækjendur geti undirbúið sig og verið búnir að ná sér í aðgang að Rafrænni Reykjavík og afla sér tilskilinna gagna. 

Nánari upplýsingar: Upplýsingasíða um götu- og torgsölu.