Kynningar á tillögu að nýju svæðisskipulagi

Skipulagsmál

""

Tillaga að nýju svæðisskipulagi á höfuðborgarsvæðinu hefur verið auglýst til umsagna, frestur til að skila inn athugasemdum er til 2. febrúar. 

Tillaga að nýju svæðisskipulagi á höfuðborgarsvæðinu hefur verið auglýst til umsagna, frestur til að skila inn athugasemdum er til 2. febrúar.  Þeir sem vilja kynna sér tillöguna er boðið á opið hús á skrifstofu SSH, Hamraborg 9, Kópavogi á eftirtöldum dögum:

  • Þriðjudaginn 20. janúar kl. 16 - 18.
  • Miðvikudaginn 21. janúar kl. 11:30 - 13:30.
  • Fimmtudaginn 22. janúar kl. 16 - 18.

Svæðisskipulagstillagan ásamt fylgigögnum er aðgengileg á heimasíðu SSH, www.ssh.is/2040.  Þar er einnig að finna myndbandskynningu.  Á opnum húsum gefst fólki færi á kalla eftir frekari skýringum.