Tillaga að nýju svæðisskipulagi á höfuðborgarsvæðinu hefur verið auglýst til umsagna, frestur til að skila inn athugasemdum er til 2. febrúar.
Tillaga að nýju svæðisskipulagi á höfuðborgarsvæðinu hefur verið auglýst til umsagna, frestur til að skila inn athugasemdum er til 2. febrúar. Þeir sem vilja kynna sér tillöguna er boðið á opið hús á skrifstofu SSH, Hamraborg 9, Kópavogi á eftirtöldum dögum:
- Þriðjudaginn 20. janúar kl. 16 - 18.
- Miðvikudaginn 21. janúar kl. 11:30 - 13:30.
- Fimmtudaginn 22. janúar kl. 16 - 18.
Svæðisskipulagstillagan ásamt fylgigögnum er aðgengileg á heimasíðu SSH, www.ssh.is/2040. Þar er einnig að finna myndbandskynningu. Á opnum húsum gefst fólki færi á kalla eftir frekari skýringum.