Innnes ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla frá neytendum Rapunzel Polenta maísmjöl þar sem lyfjavirk efni (atropine og scopolamine) hafa greinst í vörunni sem gerir það að verkum að hún telst ekki örugg til neyslu.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Rapunzel.
Vöruheiti: Polenta Maisgrieβ.
Strikanúmer: 4006040120827.
Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar.
Nettóþyngd: 500 g.
Framleiðandi: Rapunzel Naturkost.
Framleiðsluland: Þýskaland.
Dreifing: Verslanir um land allt.
Þeim sem keypt hafa þessa vöru er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir Halldór Jökull Ragnarsson gæðastjóri Innness ehf. í gegnum síma 660 4033 eða netfangið hjr@innnes.is.