Innköllun á Rapunzel Polenta maísmjöli

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Innnes ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla frá neytendum Rapunzel Polenta maísmjöl þar sem lyfjavirk efni (atropine og scopolamine) hafa greinst í vörunni sem gerir það að verkum að hún telst ekki örugg til neyslu.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Rapunzel.

Vöruheiti:  Polenta Maisgrieβ.

Strikanúmer:  4006040120827.

Best fyrir:  Allar best fyrir dagsetningar.

Nettóþyngd:  500 g.

Framleiðandi:  Rapunzel Naturkost.

Framleiðsluland:  Þýskaland.

Dreifing:  Verslanir um land allt.

Þeim sem keypt hafa þessa vöru er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.   Nánari upplýsingar veitir Halldór Jökull Ragnarsson gæðastjóri Innness ehf. í gegnum síma 660 4033 eða netfangið hjr@innnes.is.