Innköllun á Nammiklöttum

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur:  Innköllun á Nammiklöttum

Myllan hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla frá neytendum Nammiklatta vegna vanmerktra ofnæmis- og óþolsvalda (möndlur, valhnetur, pekanhnetur og semsamfræ.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Myllan

Vöruheiti:  Nammiklatti

Strikanúmer:  5690568041628 

Umbúðir: Filma og límmiði

Nettómagn:  90 g

Best fyrir:  Allar „best fyrir“ dagsetningar

Framleiðsluland:  Ísland

Dreifing: Verslanir um land allt

Möndlur, valhnetur, pekanhnetur og sesamfræ eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.  Því er um að ræða matvæli sem geta valdið neytendum heilsutjóni. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.

Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru með ofnæmi fyrir ofangreindum ofnæmis-og óþolsvöldum eru beðnir að neyta hennar ekki og farga henni eða skila í verslunum þar sem hún var keypt eða hjá Myllunni, Skeifunni 19 milli 8 og 16 alla virka daga. Frekari upplýsingar fást hjá gæðadeild Myllunnar.