Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: Innköllun á Nammiklöttum
Myllan hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla frá neytendum Nammiklatta vegna vanmerktra ofnæmis- og óþolsvalda (möndlur, valhnetur, pekanhnetur og semsamfræ.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Myllan
Vöruheiti: Nammiklatti
Strikanúmer: 5690568041628
Umbúðir: Filma og límmiði
Nettómagn: 90 g
Best fyrir: Allar „best fyrir“ dagsetningar
Framleiðsluland: Ísland
Dreifing: Verslanir um land allt
Möndlur, valhnetur, pekanhnetur og sesamfræ eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Því er um að ræða matvæli sem geta valdið neytendum heilsutjóni. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.
Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru með ofnæmi fyrir ofangreindum ofnæmis-og óþolsvöldum eru beðnir að neyta hennar ekki og farga henni eða skila í verslunum þar sem hún var keypt eða hjá Myllunni, Skeifunni 19 milli 8 og 16 alla virka daga. Frekari upplýsingar fást hjá gæðadeild Myllunnar.