Geðheilbrigði barna, viðbrögð, úrræði og nýjar leiðir er yfirskrift næsta morgunverðarfundar Náum áttum. Fundurinn er miðvikudaginn 18. mars næstkomandi og að venju er hann á Grand Hótel frá 8.15 - 10.00.
Frummælendur eru þau María Hildiþórsdóttir, framkvæmdastjóri Sjónarhóls, sem fjallar um börn með geðrænan vanda og stöðu foreldra, Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri Embættis landslæknis, segir frá geðrækt í skólastarfi og að lokum heldur Hákon Sigursteinsson, sálfræðingur Þjónustumiðstöðvar Breiðholts, erindi um geðheilbrigði barna og forvarnir í nærumhverfi.
Fundarstjóri er Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur og verkefnisstjóri Embættis landslæknis. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að fólk skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 2.100 krónur en innifalið í því er morgunverður.