Geðheilbrigði barna

Velferð Skóli og frístund

""

Geðheilbrigði barna, viðbrögð, úrræði og nýjar leiðir er yfirskrift næsta morgunverðarfundar Náum áttum. Fundurinn er miðvikudaginn 18. mars næstkomandi og að venju er hann á Grand Hótel frá 8.15 - 10.00.

Frummælendur eru þau María Hildiþórsdóttir, framkvæmdastjóri  Sjónarhóls, sem fjallar um börn með geðrænan vanda og stöðu foreldra,  Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri Embættis landslæknis, segir frá geðrækt í skólastarfi og að lokum heldur Hákon Sigursteinsson, sálfræðingur Þjónustumiðstöðvar Breiðholts, erindi um geðheilbrigði barna og forvarnir í nærumhverfi. 

Fundarstjóri er Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur og verkefnisstjóri Embættis landslæknis. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að fólk skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 2.100 krónur en innifalið í því er morgunverður.

Auglýsing vegna morgunverðarfundarins.