Breytingar á ásjónu starfsemi OR

Umhverfi

""
Orkuveita Reykjavíkur eða OR verður hefur gert breytingar á ásjónu starfsemis fyrirtækisins. Eftirleiðis verða félögin þrjú í starfsemi OR gagnvart gagnvart viðskiptavinum  og landsmönnum öllum:

Orka náttúrunnar (ON), Gagnaveita Reykjavíkur með vörumerki sitt Ljósleiðarann og nú Veitur.
Þar með lýkur uppskiptingu starfseminnar sem hófst með aðskilnaði samkeppnis- og sérleyfishluta rekstrarins í ársbyrjun 2014.

Veitur ohf. eru kynntar til sögunnar, stærsta fyrirtækið innan OR samstæðunnar. Veitur dreifa rafmagni, heitu og köldu vatni og reka fráveitur á svæði þar sem búa tæplega þrír af hverjum fjórum landsmönnum, frá Grundarfirði í vestri til Hvolsvallar í austri.
Framkvæmdastjóri Veitna er Inga Dóra Hrólfsdóttir verkfræðingur.


Áhersla er lögð á rafræna þjónustu við viðskiptavini Veitna á nýjum vef, www.veitur.is. Símanúmer þjónustuvers er eftir sem áður 516 600.


Móðurfélagið OR dregur sig þar með í hlé sem málsvari þjónustunnar gagnvart viðskiptavinum. Rekstrarleg ábyrgð samstæðunnar er óbreytt, engar breytingar eru á skipuriti í tengslum við þessar breytingar og móðurfélagið mun áfram svara fyrir samstæðuna í heild.
 
Hér eru nokkrar ábendingar og óskir vegna þessara breytinga:
  • Ef merki Orkuveitu Reykjavíkur er birt á þínum vegum, vinsamlegast skiptu því þá út og notaðu endilega merki Veitna ef samstarfið er vegna   veiturekstursins. Þetta gæti til dæmis átt við um sveitarfélag.
  • Símanúmer Veitna er 516 6000 og almennt netfang veitur@veitur.is.
  • Símanúmer OR er 516 6100 og almennt netfang er eftir sem áður or@or.is.
  • Merki Veitna
  • Nýtt merki OR