Orkuveita Reykjavíkur eða OR verður hefur gert breytingar á ásjónu starfsemis fyrirtækisins. Eftirleiðis verða félögin þrjú í starfsemi OR gagnvart gagnvart viðskiptavinum og landsmönnum öllum:
Orka náttúrunnar (ON), Gagnaveita Reykjavíkur með vörumerki sitt Ljósleiðarann og nú Veitur.
Orka náttúrunnar (ON), Gagnaveita Reykjavíkur með vörumerki sitt Ljósleiðarann og nú Veitur.
Þar með lýkur uppskiptingu starfseminnar sem hófst með aðskilnaði samkeppnis- og sérleyfishluta rekstrarins í ársbyrjun 2014.
Veitur ohf. eru kynntar til sögunnar, stærsta fyrirtækið innan OR samstæðunnar. Veitur dreifa rafmagni, heitu og köldu vatni og reka fráveitur á svæði þar sem búa tæplega þrír af hverjum fjórum landsmönnum, frá Grundarfirði í vestri til Hvolsvallar í austri.

Framkvæmdastjóri Veitna er Inga Dóra Hrólfsdóttir verkfræðingur.
Áhersla er lögð á rafræna þjónustu við viðskiptavini Veitna á nýjum vef, www.veitur.is. Símanúmer þjónustuvers er eftir sem áður 516 600.
Móðurfélagið OR dregur sig þar með í hlé sem málsvari þjónustunnar gagnvart viðskiptavinum. Rekstrarleg ábyrgð samstæðunnar er óbreytt, engar breytingar eru á skipuriti í tengslum við þessar breytingar og móðurfélagið mun áfram svara fyrir samstæðuna í heild.
Hér eru nokkrar ábendingar og óskir vegna þessara breytinga:
- Ef merki Orkuveitu Reykjavíkur er birt á þínum vegum, vinsamlegast skiptu því þá út og notaðu endilega merki Veitna ef samstarfið er vegna veiturekstursins. Þetta gæti til dæmis átt við um sveitarfélag.
- Símanúmer Veitna er 516 6000 og almennt netfang veitur@veitur.is.
- Símanúmer OR er 516 6100 og almennt netfang er eftir sem áður or@or.is.
- Merki Veitna
- Nýtt merki OR