Breyting á aðalskipulagi á Barónsreit - Skúlagötu

Skipulagsmál

""
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 samkvæmt  1. mgr. 36. gr,  sbr. 31. gr. laga nr. 123/2010.
Fjöldi íbúða og hæðir húsa breytast í aðalskipulagi á Barónsreit-Skúlagatu.  

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 15. október 2015 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2013,  samkvæmt  1. mgr. 36. gr,  sbr. 31. gr. laga nr. 123/2010.  Í breytingartillögunni felst að heimildir um fjölda íbúða á Barónsreit (reitur nr. 11) verða 80-200 í stað 100 áður. Ákvæði um hæðir húsa á reitnum breytast þannig að skýrt er sett fram að hæðir húsa næst Hverfisgötu verði 4-6 hæðir en næst Skúlagötu verði viðmiðið 6-16 hæðir. Um svæðið næst Skúlagötu skal viðmiðið almennt vera 6 hæðir en ákvæði um 16 hæðir takmarkast við eitt háhýsi. Í samræmi við þetta er reitur 11 nú nefndur Barónsreitur-Skúlagata. Aðalskipulagstillagan er kynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi hluta reitsins, Barónsreitur 1.154.3.

 
Tillagan liggur einnig frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 29. október 2015 til og með 10. desember 2015.  Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til  skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 10. desember 2015. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.