Miðvikudaginn 10. desember sl. stóð mannréttindaráð fyrir opnum fundi í Iðnó. Fundurinn var vel sóttur og fjallað var um reynsluna af mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.
Árlega stendur mannréttindaráð fyrir opnum fundi. Að þessu sinni var umfjöllunarefnið mannréttindastefna borgarinnar.
Á fundinum voru flutt 3 erindi sem nálgast má hér:
Hvernig varð hún til? Halldóra Gunnarsdóttir, sérfræðingur í jafnrréttismálum hjá Reykjavíkurborg.
Mannréttindaborgin Reykjavík? Dr. Þorgerður Þorvaldsdóttir.
Mannréttindastefnan sem verkfæri. Ingi B. Poulsen umboðsmaður borgarbúa.