Atvinnutorg sýnir ótvírætt að fái fólk aðstoð við atvinnuleit skilar það árangri. Ársskýrsla Atvinnutorgs 2013 er komin út og þar kemur fram að frá upphafi hafi 408 einstaklingar leitað eftir aðstoð, þar af hafa 303 fengið lausn sinna mála. Einnig kemur fram að 68% þeirra sem fara í gegnum Atvinnutorg fara í starf eða nám og hætta að fá bætur eða fjárhagsaðstoð.
Á árinu 2013 var verkefni Atvinnutorgs flutt frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar og til atvinnumáladeildar, sem er ætlað að sameina atvinnumál borgarinnar undir einn hatt. Þjónustan var fyrir unga vinnufæra atvinnuleitendur á aldrinum 16-29 en því var breytt um síðustu áramót og Atvinnutorg er nú fyrir alla aldurshópa. Hjá Atvinnutorgi fær hver og einn sinn ráðgjafa og einstaklingsmiðaða ráðgjöf og stuðning i atvinnuleit.
Markmið Atvinnutorgs er:
- að auka virkni atvinnuleitenda með áherslu á þá sem eingöngu fá fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg til framfærslu,
- að auka samstarf og samfellu í þjónustu Vinnumálastofnunar og Reykjavíkurbogar við fólk án atvinnu og án tillits til réttinda þess innan atvinnuleysistryggingakerfisins,
- að auka sérstaklega virkni þessa fólks sem hvorki er í skóla né vinnu og hefur ekki sótt um fjárhagsaðstoð.
Á árinu 2013 fóru 65 í tímabundnar ráðningar en einnig reyndist nauðsynlegt að vísa einstaklingum í sérhæfð úrræði. Á árinu sóttu 18 einstaklingar námskeið, fimm fóru í viðtalsmeðferð, fjórir í áfengis- og fíkniefnameðferð og þremur var vísað í starfsendurhæfingu.
Af þeim sem fengu þjónustu hjá Atvinnutorgi árið 2013 luku 115 af 182 þátttöku. Þar af hófu 59% störf á almennum vinnumarkaði, 13% fóru í nám, 5% voru brottfluttir, 16% hættu og óvinnufærir töldust 7% .
Skýrslan sýnir án nokkurs vafa að Atvinnutorg skilar árangri í því að koma ungu fólki út á vinnumarkaðinn eða í nám.