Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa gert samning við Strætó bs.um umsjón með Ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Þjónusta við fatlað fólk verður aukin frá áramótum, fyrst og fremst vegna hærri gæðakrafna varðandi bíla og búnað þeirra og styttri fyrirvara á pöntun. Akstur verður í boði á sama tíma og þjónusta strætisvagna en miðað er við að panta þurfi ferðir með tveggja tíma fyrirvara.
Skrifað var undir samninginn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, en hann byggir á samkomulegi sveitarfélaganna um sameiginlega ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu. Strætó bs. mun reka þjónustuver vegna ferðaþjónustunnar, hafa samskipti við samráðshóp félagsmálastjóra sveitarfélaganna og hafa útboð og umsjón með samningum við þá verktaka sem munu sinna akstrinum.
Nýr tölvubúnaður verði tekinn í gagnið fyrir þjónustuna sem geri notendum auðveldara að panta sér ferðir. Nýr búnaður gerir það að verkum að hægt verður að skipuleggja ferðirnar betur og þannig nýtast bílarnir betur. Þjónustuverið mun sjá um pantanir, en félagsþjónusta hvers sveitarfélags ákveður hverjum er heimilt að nota þjónustuna og hvernig. Aksturinn verður boðinn út og mun Strætó sjá um það útboð, ásamt því að kenna verktökum á hugbúnaðinn.