Samningur við Strætó bs. um ferðaþjónustu fatlaðs fólks

Velferð Samgöngur

""

Sveit­ar­fé­lög­in á höfuðborg­ar­svæðinu hafa gert samn­ing við Strætó bs.um um­sjón með Ferðaþjón­ustu fatlaðs fólks. Þjón­usta við fatlað fólk verður auk­in frá ára­mót­um, fyrst og fremst vegna hærri gæðakrafna varðandi bíla og búnað þeirra og styttri fyr­ir­vara á pönt­un. Akst­ur verður í boði á sama tíma og þjón­usta stræt­is­vagna en miðað er við að panta þurfi ferðir með tveggja tíma fyr­ir­vara.

 

Skrifað var und­ir samn­ing­inn í Ráðhúsi Reykja­vík­ur í dag, en hann bygg­ir á sam­komu­legi sveit­ar­fé­lag­anna um sam­eig­in­lega ferðaþjón­ustu fatlaðs fólks á höfuðborg­ar­svæðinu. Strætó bs. mun reka þjón­ustu­ver vegna ferðaþjón­ust­unn­ar, hafa sam­skipti við sam­ráðshóp fé­lags­mála­stjóra sveit­ar­fé­lag­anna og hafa útboð og um­sjón með samn­ing­um við þá verk­taka sem munu sinna akstr­in­um.

Nýr tölvu­búnaður verði tek­inn í gagnið fyr­ir þjón­ust­una sem geri not­end­um auðveld­ara að panta sér ferðir. Nýr búnaður gerir það að verkum að hægt verður að skipu­leggja ferðirn­ar bet­ur og þannig nýtast bílarnir betur. Þjón­ustu­verið mun sjá um pant­an­ir, en fé­lagsþjón­usta hvers sveit­ar­fé­lags ákveður hverj­um er heim­ilt að nota þjón­ust­una og hvernig. Akst­ur­inn verður boðinn út og mun Strætó sjá um það útboð, ásamt því að kenna verk­tök­um á hug­búnaðinn.