Starfsmenn Reykjavíkurborgar eru þessa dagana að mála bekki, borð og hjólahlið í einkennislitum sem íbúar völdu til að lífga upp á sumargöturnar í ár. Litasamsetningin PollaPönk – burtu með fordóma varð hlutskörpust í kosningunni.
Frá og með 17. júní verða Laugavegur fyrir neðan Vatnsstíg og Skólavörðustígur neðan Bergstaðastrætis sumargötur fyrir gangandi vegfarendur. Bílum er beint um greiðar hjáleiðir og opið er fyrir akstur um þvergötur, auk þess sem bílastæði fyrir hreyfihamlaða verður við göngugötu. Gert er ráð fyrir akstri með aðföng kl. 8 – 12 virka daga, en almennar bifreiðastöður í götunni eru óheimilar.
Pósthússtræti frá Kirkjustræti var breytt í sumargötu fyrir tveimur vikum síðan með sama fyrirkomulagi og þær sem bætast við á þjóðhátíðardaginn.
Sumargöturnar fá allar að njóta mannlífsins til mánudagsins 1. september. Í samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs er þó gert ráð fyrir þeim möguleika að framlengja megi tímann ef hagsmunaaðilar óska eftir því tímanlega.
Tengd frétt:
Litríkar sumargötur - þar má sjá þá liti sem stóðu til boða