Höfuð í bleyti - kynning á frístundaverkefnum

Skóli og frístund

""

Áhugaverð verkefni á vettvangi frístundamála verða kynnt í málstofum fyrir starfsfólk í Gerðubergi 14. maí. Boðið verður upp á skemmtileg erindi og umræður. 

Dagskráin í Gerðubergi hefst kl. 9.00 og verður boðið upp á málstofur í fjórum lotum. Meðal þess sem fjallað verður um og kynnt er barnalýðræði, forvarnir við neteinelti, verkefnið árangursrík samskipti, sjálfsstyrkingarhópur fyrir stelpur og félagsmiðstöð á hjólum. Í öllum málstofum verður sagt frá nokkrum áhugaverðum verkefnum sem eru í gangi í frístundastarfinu og skipst á hugmyndum í umræðum. 

Gert er ráð fyrir að hver og einn starfsmaður velji sér fjögur erindi - eitt í hverri lotu - og sendi skráningu og númer þeirra erinda sem valin eru á netfangið ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is fyrir kl. 15.00 mánudaginn 12. maí. 

Sjá dagskrá Höfuðs í bleyti.