Gatnamótum Hverfisgötu og Klapparstígs verður lokað fyrir bílaumferð í fyrramálið (miðvikudag) vegna tenginga háspennustrengs, hitaveitu og snjóbræðslustofna. Áætlað er að vinnu verði lokið á föstudag.
Í næstu viku verður gata malbikuð og unnið við frágang nærliggjandi gangstétta.
Framkvæmdirnar tengjast endurgerð Hverfisgötu frá Klapparstíg að Vitastíg, en á því svæði hafa allar lagnir verið endurnýjaðar og nú er unnið við yfirborðfrágang.
Nánari upplýsingar um framkvæmdir á Hverfisgötu er að finna í Framkvæmdasjá: Skoða upplýsingasíðu um Hverfisgötu.