Borgarstjórn setji sér áhættustefnu

Stjórnsýsla Fjármál

""

Innri endurskoðun hefur árlega síðan árið 2008 lagt mat á eftirlitsumhverfi Reykjavíkurborgar og komið ábendingum um úrbætur til stjórnenda, borgarráðs og borgarstjórnar. Í ár er megináhersla lögð á að fylgja eftir fyrri ábendingum Innri endurskoðunar, en nýjum ábendingum er einnig komið á framfæri eftir því sem talið var nauðsynlegt.

Áherslur borgarstjórnar birtast í stefnumótun sem leggur fagsviðum og skrifstofum línurnar um framkvæmd verkefna sinna í þágu borgarbúa. Mikilvægt er að borgarstjórn sé vel upplýst og hafi á að skipa þeim stjórnunartækjum sem gera henni kleift að hafa eftirlit með því að stefnan nái fram að ganga og að settum markmiðum sé náð. Áhættustýring er kerfisbundin aðferð sem beitt er þvert á starfsemi til að greina, upplýsa og ákvarða hvernig skuli bregðast við tækifærum og ógnunum sem skipulagsheildin stendur frammi fyrir við að ná sínum markmiðum. Borgarstjórn þarf að setja sér áhættustefnu og stuðla þannig að skilvirkri umgjörð um fyrirkomulag áhættustýringar.

Eftirlitsumhverfið er grunnur alls innra eftirlits. Það gefur tóninn og endurspeglar viðhorf og aðgerðir borgarstjórnar og stjórnenda borgarinnar varðandi mikilvægi innra eftirlits. Á liðnum árum hefur borgarstjórn unnið að uppbyggingu góðra stjórnarhátta og innra eftirlits hjá Reykjavíkurborg sem skapar ágæta umgjörð fyrir góða stjórnsýsluframkvæmd. Skýrsla Innri endurskoðunar er liður í upplýsingagjöf til borgarráðs og borgarstjórnar um eftirlitsumhverfi Reykjavíkurborgar og miðar að því að veita óháða og hlutlæga staðfestingu og ráðgjöf sem er ætlað að vera virðisaukandi og bæta rekstur Reykjavíkurborgar og fyrirtækja og stofnana hennar.



Skýrsla Innri endurskoðunar.