Hópur bæjarfulltrúa frá bæjarstjórn Akureyrar er í heimsókn hjá Reykjavíkurborg í dag. Hópnum var boðið í hádegisverð í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag og að því búnu var farið í skoðunarferð um borgina. Nú stendur yfir sameiginlegur fundur borgar- og bæjarstjórnar.
Hópur bæjarfulltrúa frá bæjarstjórn Akureyrar er í heimsókn hjá Reykjavíkurborg í dag.
Borgarstjóri ásamt borgarfulltrúum heimsótti Akureyri á 150 ára afmæli bæjarins árið 2012. Á meðan á heimsókninni stóð var haldinn sameiginlegur fundur bæjarstjórnar og borgarstjórnar í Hofi í tilefni tímamótanna og rædd voru ýmis hagsmunamál sveitarfélaganna tveggja. Á fundinum var ákveðið að Reykjavíkurborg myndi bjóða bæjarstjórn Akureyrar til Reykjavíkur til fundar um ýmis málefni.