Bæjarstjórn Akureyrar heimsækir Reykjavíkurborg

Stjórnsýsla

""

Hópur bæjarfulltrúa frá bæjarstjórn Akureyrar er í heimsókn hjá Reykjavíkurborg í dag. Hópnum var boðið í hádegisverð í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag og að því búnu var farið í skoðunarferð um borgina. Nú stendur yfir sameiginlegur fundur borgar- og bæjarstjórnar. 

Hópur bæjarfulltrúa frá bæjarstjórn Akureyrar er í heimsókn hjá Reykjavíkurborg í dag.

Borgarstjóri ásamt borgarfulltrúum heimsótti Akureyri á 150 ára afmæli bæjarins árið 2012.  Á meðan á heimsókninni stóð var haldinn sameiginlegur fundur bæjarstjórnar og borgarstjórnar í Hofi í tilefni tímamótanna og rædd voru ýmis hagsmunamál sveitarfélaganna tveggja. Á fundinum var ákveðið að Reykjavíkurborg myndi bjóða bæjarstjórn Akureyrar til Reykjavíkur til fundar um ýmis málefni.

Hópnum var boðið í hádegisverð í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag og að því búnu var farið í skoðunarferð um borgina. Haldinn var óformlegur fundur áður en haldinn var sameiginlegur fundur borgar- og bæjarstjórnar klukkan 16. 
 
Sameiginlegur fundur sveitarfélaganna tveggja stendur nú yfir í borgarstjórnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og á dagskrá fundarins eru eftirfarandi málefni:
 
1. Umræða um samskipti ríkis og sveitarfélaga.
 
2. Tillaga um samstarf Akureyrar og Miðgarðs, þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar í Grafarvogi.