Föstudaginn 1. febrúar stendur skóla- og frístundasvið ásamt menntavísindasviði HÍ fyrir málþingi undir yfirskriftinni SNÚ SNÚ – stefnumót frístundamiðstöðvanna og Háskóla Íslands. Fjallað verður um hugmyndafræði og þróun frístundastarfs á nýju skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar.
Auglýsing um málþingið (PDF)
Snú Snú
Stefnumót frístundamiðstöðvanna og Háskóla Íslands
Málþing um hugmyndafræði og þróun frístundastarfs á nýju
skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar
Föstudaginn 1. febrúar 2013, kl. 8:30-13:15 í Tjarnarbíói
Dagskrá:
Kl. 8:30 Skráning (drykkir og ávextir)
Kl. 8:45 Setning – Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur
Kl. 9:00 Framtíð óformlegrar menntunar og mikilvægi fagstéttar – Jón Torfi Jónasson forseti Menntavísindasviðs HÍ
Kl. 9:20 Umhyggja, nám og tómstundir: Sameiginleg markmið skóla og frístundaheimila? – Dr. Kolbrún Þ. Pálsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði HÍ.
Kl. 10:15 Samstarf fagaðila um góða dagskipan fyrir börnin – Hildur Jóhannesdóttir, skólastjóri Dalskóla
Kl. 10:45 Síðbúinn morgunverður
Kl. 11:15 Hugtök og hugmyndafræði í frístundastarfi – Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði HÍ.
Kl. 11:45 Að leika, læra og þroskast úti – útinám sem samstarfsleið - Jakob Frímann Þorsteinsson, formaður námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræði HÍ.
Kl. 12:00 Samstarfsverkefni frístundamiðstöðva og tómstunda- og félagsmálafræði HÍ
- Reynsluskóli Kringlumýrar – Björn Vilhjálmsson, frá fræðslufyrirtækinu Áskorun ehf. og Haraldur Sigurðsson, forstöðumaður frístundamiðstöðvarinnar Kringlumýri – 20 mín
- Barna- og unglingalýðræði í Frostaskjóli – Guðrún Kaldal, forstöðumaður frístundamiðstöðvarinnar Frostaskjóls – 10 mín
-
Fyrstu skrefin í innra og ytra mati á starfi frístundamiðstöðva - Björk Ólafsdóttir, sérfræðingur á tölvu- og rannsóknarþjónustu SFS og Sigrún Sveinbjörnsdóttir, verkefnastjóri á frístundahluta fagskrifstofu SFS – 10 mín
Kl. 12:40 Nýjar rannsóknarspurningar, möguleg þróunarverkefni og helstu áskoranir í frístundastarfinu næstu árin
-
Jón Torfi Jónasson stýrir pallborðsumræðum – Í pallborði verða: Oddný Sturludóttir, Jakob Frímann Þorsteinsson, Helgi Eiríksson, Hildur Jóhannesdóttir og Kolbrún Þ. Pálsdóttir.
Kl. 13:15 Málþingsslit - Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs.
Málþingsstjóri: Eygló Rúnarsdóttir