Málþing um hugmyndfræði og þróun frístundastarfs

Skóli og frístund

Föstudaginn 1. febrúar stendur skóla- og frístundasvið ásamt menntavísindasviði HÍ fyrir málþingi undir yfirskriftinni SNÚ SNÚ – stefnumót frístundamiðstöðvanna og Háskóla Íslands. Fjallað verður um hugmyndafræði og þróun frístundastarfs á nýju skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar.

Auglýsing um málþingið (PDF)

Snú Snú

Stefnumót frístundamiðstöðvanna og Háskóla Íslands

Málþing um hugmyndafræði og þróun frístundastarfs á nýju

skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar

Föstudaginn 1. febrúar 2013, kl. 8:30-13:15 í Tjarnarbíói



Dagskrá:

Kl. 8:30   Skráning (drykkir og ávextir)

Kl. 8:45   Setning – Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur

Kl. 9:00   Framtíð óformlegrar menntunar og mikilvægi fagstéttar – Jón Torfi Jónasson forseti Menntavísindasviðs HÍ

Kl. 9:20   Umhyggja, nám og tómstundir: Sameiginleg markmið skóla og frístundaheimila? – Dr. Kolbrún Þ. Pálsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði HÍ.

Kl. 10:15   Samstarf fagaðila um góða dagskipan fyrir börnin – Hildur Jóhannesdóttir, skólastjóri Dalskóla

Kl. 10:45   Síðbúinn morgunverður

Kl. 11:15   Hugtök og hugmyndafræði í frístundastarfi – Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði HÍ.

Kl. 11:45   Að leika, læra og þroskast úti – útinám sem samstarfsleið - Jakob Frímann Þorsteinsson, formaður námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræði HÍ.



Kl. 12:00   Samstarfsverkefni frístundamiðstöðva og tómstunda- og félagsmálafræði HÍ

  • Reynsluskóli Kringlumýrar – Björn Vilhjálmsson, frá fræðslufyrirtækinu Áskorun ehf. og Haraldur Sigurðsson, forstöðumaður frístundamiðstöðvarinnar Kringlumýri – 20 mín
  • Barna- og unglingalýðræði í Frostaskjóli – Guðrún Kaldal, forstöðumaður frístundamiðstöðvarinnar Frostaskjóls – 10 mín
  • Fyrstu skrefin í innra og ytra mati á starfi frístundamiðstöðva - Björk Ólafsdóttir, sérfræðingur á tölvu- og rannsóknarþjónustu SFS og Sigrún Sveinbjörnsdóttir, verkefnastjóri á frístundahluta fagskrifstofu SFS – 10 mín

     

Kl. 12:40   Nýjar rannsóknarspurningar, möguleg þróunarverkefni og helstu áskoranir í frístundastarfinu næstu árin

  • Jón Torfi Jónasson stýrir pallborðsumræðum – Í pallborði verða: Oddný Sturludóttir, Jakob Frímann Þorsteinsson, Helgi Eiríksson, Hildur Jóhannesdóttir og Kolbrún Þ. Pálsdóttir.            

     

Kl. 13:15   Málþingsslit - Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs.

Málþingsstjóri: Eygló Rúnarsdóttir