Kíton-konur í Viðey

Menning og listir

""

KÍTÓN-kon­urnar Anna María og Lilja Björk Runólfsdóttir munu skemmta í Viðeyjarstofu fimmtu­dag­kvöldið 15. ágúst kl. 20:00.

Anna María er söng­kona í Norrænu spuna­söng­hljóm­sveit­inni IKI sem sam­an­stendur af 8 norrænum söng­konum sem spinna alla tónlist. Með IKI unnu þær dönsku tón­list­ar­verð­launin 2011 fyrir sinn fyrsta disk. Hún er búsett í Danmörku.

Lilja Björk lauk námi í tón­smíðum frá Listaháskóla Íslands vorið 2013, semur eigin tónlist og vinnur að henni eins og er.

Flutningur þeirra verður afrakstur vinnu þeirra saman, tón­smíða og radda og ætti að vera mjög áhuga­verð blanda frá þessum upp­renn­andi tónlistarkonum.

Það kostar 2.700 krónur á tón­leik­ana og sigl­ing með ferj­unni er innifalin. Miðasala fer fram á midi.is.

Ferjan siglir frá Skarfabakka við Sundhöfn kl. 19:15 og til baka að tón­leikum loknum.