KÍTÓN-konurnar Anna María og Lilja Björk Runólfsdóttir munu skemmta í Viðeyjarstofu fimmtudagkvöldið 15. ágúst kl. 20:00.
Anna María er söngkona í Norrænu spunasönghljómsveitinni IKI sem samanstendur af 8 norrænum söngkonum sem spinna alla tónlist. Með IKI unnu þær dönsku tónlistarverðlaunin 2011 fyrir sinn fyrsta disk. Hún er búsett í Danmörku.
Lilja Björk lauk námi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands vorið 2013, semur eigin tónlist og vinnur að henni eins og er.
Flutningur þeirra verður afrakstur vinnu þeirra saman, tónsmíða og radda og ætti að vera mjög áhugaverð blanda frá þessum upprennandi tónlistarkonum.
Það kostar 2.700 krónur á tónleikana og sigling með ferjunni er innifalin. Miðasala fer fram á midi.is.
Ferjan siglir frá Skarfabakka við Sundhöfn kl. 19:15 og til baka að tónleikum loknum.