Hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar

Skóli og frístund Mannlíf

""

Hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir framsækið skóla- og frístundastarf. 

Þetta er í fyrsta sinn sem hvatningarverðlaun voru veitt samtímis fyrir metnaðarfullt fagstarf í leikskólum, grunnskólum og frístundamiðstöðvum borgarinnar. Markmið þeirra er að vekja athygli á gróskumiklu starfi og hvetja til nýbreytni- og þróunarstarfs.

Leitað var eftir tilnefningum til hvatningarverðlaunanna hjá foreldrum, kennurum, starfsfólki, skólum og öðrum borgarstofnunum.  Jón Gnarr borgarstjóri og Oddný Sturludóttir formaður íþrótta- og tómstundaráðs afhentu verðlaunin í Ráðhúsi Reykjavíkur en verðlaunagripirnir eru eftir listakonuna Ingibjörgu H. Ágústsdóttur.

·         Hólabrekkuskóli fyrir verkefnið, Olympics International.

·         Félagsmiðstöðvar Miðbergs, hæfileikakeppnin Breiðholt´s got talent.

·         Samstarfsverkefnið Okkar mál í Fellahverfi. Þeir sem eiga aðild að því eru leikskólinn Ösp, leikskólinn Holt og Fellaskóli.