Hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir framsækið skóla- og frístundastarf.
Þetta er í fyrsta sinn sem hvatningarverðlaun voru veitt samtímis fyrir metnaðarfullt fagstarf í leikskólum, grunnskólum og frístundamiðstöðvum borgarinnar. Markmið þeirra er að vekja athygli á gróskumiklu starfi og hvetja til nýbreytni- og þróunarstarfs.
Leitað var eftir tilnefningum til hvatningarverðlaunanna hjá foreldrum, kennurum, starfsfólki, skólum og öðrum borgarstofnunum. Jón Gnarr borgarstjóri og Oddný Sturludóttir formaður íþrótta- og tómstundaráðs afhentu verðlaunin í Ráðhúsi Reykjavíkur en verðlaunagripirnir eru eftir listakonuna Ingibjörgu H. Ágústsdóttur.
· Hólabrekkuskóli fyrir verkefnið, Olympics International.
· Félagsmiðstöðvar Miðbergs, hæfileikakeppnin Breiðholt´s got talent.
· Samstarfsverkefnið Okkar mál í Fellahverfi. Þeir sem eiga aðild að því eru leikskólinn Ösp, leikskólinn Holt og Fellaskóli.