Fræðsla um jarðfræði og jarðmyndanir í Viðey

Umhverfi Mannlíf

""

Þriðju­dag­inn 30. júlí mun Hreggviður Norðdahl jarð­fræð­ingur miðla af visku sinni um hvernig eldar, ís og sjór hafa skapað og mótað hina fal­legu Viðey.

Jarðfræði er Íslend­ingum hug­leikin og ekki þarf nema rétt að bregða sér af braut mal­biks­ins til að finna merkar jarð­mynd­anir. Í Viðey er elsta bergið í borgarlandinu og víða sjást þar stór­brotnar berg­mynd­anir, m.a. fal­legt stuðlaberg.

Ferjan til Viðeyjar fer auka­ferð á þriðju­dags­kvöldum frá Skarfabakka  kl. 18:15 og 19:15.

Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upp­lagt að njóta þar kvöld­verðar áður en gangan hefst. Að göngu lok­inni er einnig til­valið að fá sér hress­ingu áður en haldið er heim á leið.

Síðasta ferjan fer úr Viðey yfir á Skarfabakka um eða upp úr kl. 22:00. Ókeypis er í göng­una en gjald í ferj­una fram og til baka er 1100 kr. fyrir full­orðna og 550 kr.- fyrir börn 7–15 ára í fylgd full­orð­inna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Eldri borgarar greiða 900 krónur.

Handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.