Þriðjudaginn 30. júlí mun Hreggviður Norðdahl jarðfræðingur miðla af visku sinni um hvernig eldar, ís og sjór hafa skapað og mótað hina fallegu Viðey.
Jarðfræði er Íslendingum hugleikin og ekki þarf nema rétt að bregða sér af braut malbiksins til að finna merkar jarðmyndanir. Í Viðey er elsta bergið í borgarlandinu og víða sjást þar stórbrotnar bergmyndanir, m.a. fallegt stuðlaberg.
Ferjan til Viðeyjar fer aukaferð á þriðjudagskvöldum frá Skarfabakka kl. 18:15 og 19:15.
Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta þar kvöldverðar áður en gangan hefst. Að göngu lokinni er einnig tilvalið að fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið.
Síðasta ferjan fer úr Viðey yfir á Skarfabakka um eða upp úr kl. 22:00. Ókeypis er í gönguna en gjald í ferjuna fram og til baka er 1100 kr. fyrir fullorðna og 550 kr.- fyrir börn 7–15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Eldri borgarar greiða 900 krónur.
Handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.