Naustin (Tryggvagata-Hafnarstræti) - Gatnagerð og lagnir
Verkkaupar eru Reykjavíkurborg og Veitur.
Hvað verður gert?
Jarðvinna:
Jarðvegsskipta á í götunni og því töluverður uppgröftur sem leiðir til þess að lokað verður á umferð bíla um götuna á framkvæmdatíma. Ekki er reiknað með að fleygun klappar verði umfangsmikil. Aðgengi gangandi að lóðum og inngöngum verður tryggt allan verktímann.
Veitur:
Gatan verður upphituð og snjóbræðsla lögð í allt göturýmið. Borgarlýsing verður uppfærð; nýir götuljósastrengir, stólpar og lampar. Lögð verður tvöföld fráveita sem tengd verður núverandi fráveitukerfi í Tryggvagötu og Hafnarstræti. Lagðar verða nýjar kaldavatnslagnir og hitaveitulagnir.
Yfirborðsfrágangur:
Nýtt yfirborð götu verður hellulagt ásamt gróðurbeðum og setbekkjum.