Miklabraut/Grensásvegur

Umferðaröryggisúrbætur á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar
Áætlaður framkvæmdatími: ágúst 2026 - nóvember 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

  • Settar verða nýjar, upphækkaðar gönguþveranir á fjórum stöðum við gatnamótin, þar sem umferð er hleypt til hægri af aðalbraut, eða við svokölluð hægribeygju-framhjáhlaup.
  • Lýsing verður bætt en settir verða upp ljósastaurar og götulampar vegna gangbrautarlýsingar.
  • Endurbætur verða gerðar á miðeyjum og aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
  • Einnig á að koma fyrir nýjum niðurföllum.
  • Fara þarf í jarðvinnu og yfirborðsfrágang í lok framkvæmda

 

Hvernig gengur?

Ágúst 2026

Framkvæmdir hefjast laugardaginn 22. ágúst á NA horni gatnamótanna.

Áætlaðar eru tvær vikur á hverju horni og er röðin eftirfarandi:

  • NA horn
  • NV horn
  • SA horn
  • SV horn

Hver koma að verkinu?

Verkefnastjóri Reykjavíkurborgar

Emilía Maí Gunnarsdóttir

Verkefnisstjóri Vegagerðarinnar

Ylfa Rakel Ólafsdóttir

Verktaki

D.ing

Eftirlit framkvæmda

VSÓ Ráðgjöf

Verkhönnun

Hnit Artelia
Síðast uppfært 21.08.2026