Miklabraut/Grensásvegur
Umferðaröryggisúrbætur á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar
Áætlaður framkvæmdatími: ágúst 2026 - nóvember 2026
Hvað verður gert?
- Settar verða nýjar, upphækkaðar gönguþveranir á fjórum stöðum við gatnamótin, þar sem umferð er hleypt til hægri af aðalbraut, eða við svokölluð hægribeygju-framhjáhlaup.
- Lýsing verður bætt en settir verða upp ljósastaurar og götulampar vegna gangbrautarlýsingar.
- Endurbætur verða gerðar á miðeyjum og aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
- Einnig á að koma fyrir nýjum niðurföllum.
- Fara þarf í jarðvinnu og yfirborðsfrágang í lok framkvæmda
Hvernig gengur?
Ágúst 2026
Framkvæmdir hefjast laugardaginn 22. ágúst á NA horni gatnamótanna.
Áætlaðar eru tvær vikur á hverju horni og er röðin eftirfarandi:
- NA horn
- NV horn
- SA horn
- SV horn
Hver koma að verkinu?
Verkefnastjóri Reykjavíkurborgar
Emilía Maí Gunnarsdóttir
Last updated 21.08.2026