Leikskólinn Hlíð - Sólhlíð – endurgerð

Leikskólinn Hlíð - Sólhlíð gengst undir heildarendurgerð.
2023-2027
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Aðaluppdrættir

Hvað verður gert?

Leikskólahúsnæði Hlíðar - Sólhlíðar gengst undir heildarendurgerð. Húsið er byggt árið 1952 og því tímabært að uppfæra húsnæðið til nútímakennsluhátta. Um er að ræða eftirfarandi verkþætti:

  • Einangrun að utanverðu
  • Uppsetning á múrklæðningu og viðgerðir á sprungum í útveggjum
  • Gluggar verða endurnýjaðir
  • Útihurðir verða endurnýjaðar
  • Spartlað og málað innandyra
  • Endurnýjun gólfefna og uppsetning nýrra innréttinga og hurða
  • Endurnýjun á öllum fráveitulögnum, neysluvatnskerfi og hitakerfi
  • Uppsetning loftræsikerfis með nýjum brunalokum og loftstokkum
  • Gólfhita og snjóbræðslu verður bætt við þar sem á við
  • Raflögnum, tenglum og lýsingu verður skipt út og ljósastýringarkerfi verður innleitt ásamt uppfærslu á brunaviðvörunarkerfi.
  • Aðgangsstýringu verður bætt við
  • Aðgengismál verða uppfærð og lyftu komið fyrir á norðurgafli hússins

Hvernig gengur?

Ágúst - September 2026

Framkvæmdir ganga vel og er steypuvinnu nú lokið að fullu. Þak er fullfrágengið og lokið hefur verið við einangrun byggingarinnar. Vinna við klæðningu hússins er hafin og unnið er að undirbúningi fyrir múrvinnu.

Innanhúss er unnið að slípun og viðgerðum á botnplötu ásamt uppsetningu og frágangi innveggja á öllum hæðum. Uppsetning lagna, loftræsingar og pípulagna er jafnframt komin vel á veg. Þá eru hafnar viðgerðir á skemmdum koltrefjaborðum.

Júní - Júlí 2026

Í júní var unnið að uppsteypu og lagnavinnu við bygginguna. Jafnframt var unnið að undirbúningi útveggja fyrir uppsetningu múrkerfis og farið yfir útfærslur þess með hönnuðum, verktaka og verkkaupa. Steypt var hæðarplata 1. hæðar, unnið við lyftuhús og tröppur auk þess sem lagningu pípulagna og gólfhita var haldið áfram.
 
Í júlí var áfram unnið að undirbúningi fyrir múrkerfi samhliða því sem innivinna fór af stað af fullum krafti. Að loknum undirbúningi fyrir flot hófst uppsetning gifsveggja og vinna við tæknilagnir. Einnig var unnið við tröppur, lyftuhús, loftræsi og hitakerfi. Fjölmargar iðngreinar störfuðu á framkvæmdasvæðinu og verkefninu miðaði vel áfram.
 
Sólhlíð

Maí 2026

Unnið var við steypuvinnu á tröppum og gólfplötu anddyris við norðurenda byggingarinnar, og jafnframt hófst undirbúningur fyrir steypu undir gólfi fyrstu hæðar í suðurhluta hússins. Vinnupallar voru settir upp umhverfis bygginguna.

Um miðjan mánuðinn hófst endurnýjun þaksins. Stærstur hluti þeirrar vinnu kláraðist fyrir mánaðamót, en lokahlutinn bíður þar til lyftuhúsið hefur verið steypt upp í fulla hæð. Í framhaldinu hófst vinna inni í þakrýminu, og haldnir voru samráðsfundir með hönnuðum um nánari útfærslu og frágang.

Stigapallur við anddyri í norðurhluta var fjarlægður og var tilbúinn fyrir steypu í lok mánaðarins.

Helstu verkþættir mánaðarins voru:

  • Sögun og förgun á hluta gólfplötu fyrstu hæðar (suðurhluti)
  • Endurnýjun þaks (klæðning og þakjárn)
  • Þétting glugga að utanverðu
  • Steypuvinna við viðbygginguna norðanmegin
  • Niðurrif og undirbúningur fyrir steypu á stigapalli í norðurhluta
  • Uppsetning vinnupalla
  • Borun gata fyrir lagnir milli hæða

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

K16 ehf

Aðalverktaki

Cowi Ísland ehf

Byggingarstjórn og verkeftirlit

Noland Arkitektar

Hönnunarstjórn og arkitekt

Efla Verkfræðistofa

Burðarvirki og lagnir

Hildiberg hönnunarhús

Rafkerfi

Blikksmiðurinn

Loftræsikerfi

Landmótun

Landslagsarkitekt

Örugg verkfræðistofa

Brunahönnun
Síðast uppfært 28.10.2026