Laugalækjarskóli - viðhaldsframkvæmdir og endurgerð
Hvað verður gert?
Unnið er að margvíslegum viðhaldsverkefnum í Laugalækjarskóla sem flest lúta að því að bæta innivist í skólanum. Unnið verður jafnt og þétt eftir því sem aðstæður leyfa hverju sinni. Viðhald, endurnýjun og mótvægisaðgerðir hafa hafa staðið yfir í skólanum síðustu ár og verður þeim haldið áfram til að tryggja að kennsla geti haldið áfram við skólann þar til farið verður í heildarendurbætur.
Svo skapa megi framkvæmdum við heildarendurgerð skólans svigrúm verður hluti starfsemi skólans fluttur í Skólaþorpið í Laugardal.
Eftirfarandi verkþættir eru framundan við heildarendurgerð skólans:
- Endurnýjun glugga
- Uppsetning loftræsikerfa
- Múrendurnýjanir
- Endurnýjun vatns- og raflagna
- Endurnýjun gólfefna
- Lagður verður metnaður í bætta hljóð- og ljósvist
- Kennslustofur verða aðlagaðar að nútíma kennsluháttum
Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu á þeim verkþáttum sem framundan eru.
Hvernig gengur?
Janúar 2026
Undanfarið hafa farið fram viðgerðir á tröppum og þaksvölum milli nýbyggingar og suðurhúss. Unnið hefur verið að gluggaútskiptum samhliða viðgerðum og endurgerðum á nokkrum kennslustofum, aðstöðu félagsmiðstöðvar, þvottahúsi, vinnustofu- og kaffistofu kennara.
Undirbúningur og þarfagreining vegna endurgerðar á elstu hlutum skólans er hafin og er áætlað að ljúka því á miðju ári.
Maí 2025
Hafist handa við lekaviðgerðir á þaksvölum milli nýbyggingar og suðurhúss.
Einnig hefjast fljótlega mótvægisaðgerðir í tveimur rýmum í hálfniðurgröfnum kjallara, aðstöðu félagsmiðstöðvar og í þremur skrifstofurýmum.
Apríl 2025
Hafist handa við framkvæmdir á heimilisfræðistofu í norðurhúsi skólans og myndmenntastofu í suðurhúsi. Verkefnið grundvallast á fjarlægingu á rakaskemmdum byggingarefnum, uppbyggingu að nýju, frágangi og ítarlegum þrifum.
Desember 2024
Framkvæmdum lokið við suður- og norður anddyri og textílstofu.
Október 2024
Gerð ítarleg ástandssgreining á skólanum sem mun liggja næstu viðhaldsverkefnum og endurgerð skólans til grundvallar.
Mars 2024
Endurskoða þarf útfærslu á klæðningu á norðurhúsi skólans en skipulagsfulltrúi hefur tekið neikvætt í þá klæðningarútfærslu sem lögð var fyrir.
Janúar 2024
Framkvæmdum lokið í kennslustofunum þremur. Áfram unnið að norður- og suðuranddyrum ásamt aðliggjandi snyrtingum. Raka að greina í gólfi heimilisfræðistofu.
Nóvember 2023
Lokafrágangur stendur yfir við suðuranddyri - áfram unnið að framkvæmdum á norðuranddyri. Framkvæmdum lokið við kaffistofu kennara. Nýir gluggar hafa verið settir í við sjoppu.
Október 2023
Unnið áfram í þremur kennslustofum auk vinnu við anddyri, kaffistofu og við úrbætur á snjóbræðslulögnum.
Gluggaísetningu á norðurhúsi skólans lokið.
Ágúst 2023
Úttekt gerð á suðurbyggingu skólans. Raka var að greina í kjallara sem sennilega má rekja til jarðvatnsálags. Ákveðið að ráðast til framkvæmda í þremur stofum skólans.
Apríl 2023
Ákveðið að ráðast í gluggaskipti á norðurhúsi skólans og undirbúa samhliða klæðningu á sömu hliðum.