Hlemmur - 2025 - 2026
Stefnt er að því að opna torgið fyrir framan hótelið fyrir há sumar, Þverholt framkvæmdin mun verða um mitt sumar.
Svæðið næst Hverfisgötu þar sem Norðurpóll og leikhöll verða sett upp mun að öllum líkindum verða tilbúið með haustmánuðum.
Hvað verður gert?
Á svæðinu verður komið fyrir hinu sögufræga húsi Norðurpólnum (minjavernd.is/is/verkefni/nordurpoll-1) sem áður var staðsett við Hverfisgötu 125. Einnig verður komið upp spennandi leiksvæði fyrir börn sem ber nafnið Hlemmur Leikhöll – stór og fjölbreytt leikgrind þar sem gleðin ræður ríkjum. Á torginu verður einnig svið sem mun bjóða upp á aðstöðu fyrir fjölda skemmtilegra viðburða og uppákoma.
Lagnir verða endurnýjaðar á svæðinu líkt og í fyrri áföngum en það verður minna í sniðum en í síðustu áföngum. Elstu lagnir á svæðinu eru frá því um 1920 og aðrar frá miðri síðustu öld. Það er því kjörið tækifæri að endurnýja þær til að tryggja íbúum og öðrum á svæðinu nauðsynlega innviði og lífsgæði til framtíðar.
Hvernig gengur?
Nóvember
Framkvæmdir hafa gengið vel, áhersla hefur verið lögð á svæðið fyrir framan hótelið á svæðinu og sviðið sem mun rísa eftir að framkvæmdum líkur. Svæðið verður opnað í áföngum eftir framvindu á verkþáttum. Ekki verður þörf á að stöðva framkvæmdir á komandi vetri.