Hlemmur - 2025 - 2026
Hvað verður gert?
Á svæðinu verður komið fyrir hinu sögufræga húsi Norðurpólnum (minjavernd.is/is/verkefni/nordurpoll-1) sem áður var staðsett við Hverfisgötu 125. Einnig verður komið upp spennandi leiksvæði fyrir börn sem ber nafnið Hlemmur Leikhöll – stór og fjölbreytt leikgrind þar sem gleðin ræður ríkjum. Á torginu verður einnig svið sem mun bjóða upp á aðstöðu fyrir fjölda skemmtilegra viðburða og uppákoma.
Lagnir verða endurnýjaðar á svæðinu líkt og í fyrri áföngum en það verður minna í sniðum en í síðustu áföngum. Elstu lagnir á svæðinu eru frá því um 1920 og aðrar frá miðri síðustu öld. Það er því kjörið tækifæri að endurnýja þær til að tryggja íbúum og öðrum á svæðinu nauðsynlega innviði og lífsgæði til framtíðar.
Hvernig gengur?
Maí 2026
- Stefnt er að því að opna torgið fyrir framan hótelið fyrir há sumar.
- Vinna við veitulagnir er í gangi í Þverholti og í framhaldi verður farið í yfirborðsfrágang á því svæði auk þess að aðkoma að inngöngum húsa sem snúa að Þverholti verður bætt og rampar gerðir þar sem því verður komið við. Áætlað er að þessar framkvæmdir standi fram á mitt sumar.
- Undirbúningur er í gangi við smíði á undirstöðum undir fyrirhugaða leikhöll. Svæðið næst Hverfisgötu þar sem Norðurpóll og leikhöll verða sett upp mun að öllum líkindum verða tilbúið með haustmánuðum.
Nóvember
Framkvæmdir hafa gengið vel, áhersla hefur verið lögð á svæðið fyrir framan hótelið á svæðinu og sviðið sem mun rísa eftir að framkvæmdum líkur. Svæðið verður opnað í áföngum eftir framvindu á verkþáttum. Ekki verður þörf á að stöðva framkvæmdir á komandi vetri.