Elliðaárdalur Stígur í stað stokks
Hvað verður gert?
Verkið felst í gerð þriggja göngu- og hjólabrúa yfir Elliðaár á þeim stað sem áður var steyptur stokkur með stofnlögnum hitaveitu. Innifalið í verkinu er viðgerðarvinna við undirstöður stokksins sem notaðir verða sem brúarstöplar í verkinu. Í verkinu felst jafnframt gerð göngu- og hjólastígs sem tengist núverandi stígum beggja vegna árinnar og áningarstaður fyrir gangandi og hjólandi.
Hvernig gengur?
Febrúar 2026
Verk er að fara í gang og má gera ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í lok febrúar eða byrjun mars.