Fjallkonan 2022

Fjallkona árið 2022 var Sylwia Zajkowska en ávarp fjallkonunnar var eftir Brynju Hjálmsdóttir.

 

Engin tunga bragðast eins

engin tunga bragðast illa

 

Tungur

hafa rætur

stofna og greinar

eru brögðóttar mildar slóttugar

kímnar kátar fullar

af munúð

hikandi haltrandi flæðandi

græðandi hvassar

ögrandi

 

sumar smáar

sumar gildar

sumar ógnandi

sumum ógnað

 

Tungu

má beita

og breyta

því verðum við að kyngja

 

Við fengum tungu

kvika og viðkvæma

hún lætur illa að stjórn

lagar sig að hverjum munni

hún er gjöf

og hún er gefins

hverjum þeim sem vill opna upp á gátt

 

Lifandi tilvist

eign einskis

 

Nú rofar til

börnin fylla litla vasa af túnfíflum

hlaupa færandi hendi inn í hlýjan faðm

 

Fíflarnir eru gulir

himinninn er blár

og faðmurinn er opinn faðmurinn

á alltaf að vera opinn

 

Grjót er ekki bara grjót

og lækur ekki bara lækur

 

Allt er lifandi

opnum upp á gátt og þiggjum

 

Í fjallinu vex hundasúra

við leggjum hana á tunguna og finnum

hvernig hún bragðast

eins og vor

eins og nýtt upphaf

eins og rót

sem fikrar sig

frá einu til annars