Fjallkonan 2020

Fjallkona árið 2020 var Edda Björgvinsdóttir en ávarp fjallkonunnar var eftir Þórdísi Gísladóttir.

 

honum lauk

þessum vetri

sem sífellt minnti á sig

og færði okkur

óveður

snjóflóð

jarðskjálfta

farsótt

 

hann er liðinn

þessi vetur

sem neyddi okkur til að rifja upp gömul orð

sóttkví

samkomubann

píningsvetur

sóttarvetur

lurkur

 

það kom vor

með sólgullin lauf

himinblátt haf

og farfuglasöng

 

nú er sumar

við getum ferðast

um stræti

garða

urðir

móa

undir hverflyndum skýjum

í sólskini

þoku

regni

 

við skulum hugsa hvert um annað

við skulum njóta bjartra dægra

við skulum rækta garðinn okkar