Fjallkonan 2015

Katla Margrét Þorgeirsdóttir var fjallkona 2015 og flutti hún ljóð eftir Þórarin Eldjárn.

Ávarp fjallkonunnar

Um miðjan júnímánuð

myrkri er horfinn styrkur,

fánar blakta í blænum,

blöðrur svífa, lúðra-

hljómur upp til himins

hefur sig og vefur,

söngur veifar vængjum,

víbrar eins og tíbrá.

Fjallkonan af fjöllum

– faldskrýdd – kemur aldrei.

Saman sjá vill koma

sína þjóð og skína, 

sundurleita sindra

sjálfstæða og frjálsa,

handvissa um að höndla

hamingju og gaman.

Árin hundrað eru

orðin síðan forðum

viss mér veittist réttur,

vonir glæddust konum.

Mál er því að mæla,

minnast þess og finna

hjörtun sem eitt hjarta,

huginn taka flugið,

heldur betur halda

hátíð, okkur láta

dreyma ¬– lifa drauma,

dvelja í núi og velja

jafnrétti og jöfnuð,

jákvæðni og ákefð,

leið sem liggur héðan,

ljósið alltaf kjósa.