Eva Bergþóra Guðbergsdóttir
![Svart hvít andlitsmynd af Evu Bergþóru Guðbergsdóttur](/sites/default/files/styles/portrait_small/public/2024-06/ebg_mynd.jpg?h=f05412a8&itok=e3Spvzu6)
Um Evu Bergþóru
Eva Bergþóra hefur verið samskiptastjóri Reykjavíkurborgar frá 2021. Hún á að baki fjölbreyttan feril í fjölmiðlum á Íslandi og sem samskiptastjóri við háskóla í Bandaríkjunum. Eva Bergþóra er með B.A. próf í ensku og stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MA í alþjóðastjórnmálum og MPA gráðu frá Middlebury Institute of International Studies.
Samskiptastjóri
Samskiptastjóri sér um stefnumótun í samskipta- og upplýsingamálum og samhæfða og áreiðanlega upplýsingamiðlun um Reykjavíkurborg og starfsemi hennar. Einnig ber samskiptastjóri ábyrgð á markaðsmálum og opinberu viðburðahaldi á vegum borgarinnar.