STYRKUR – ókeypis námskeið fyrir ungt fólk í Hinu húsinu
Styrkur er skemmtilegt sex vikna líkamsræktar námskeið fyrir ungt fólk á aldrinum 16-20 ára sem hefst í Hinu húsinu, miðstöð ungs fólks, þriðjudaginn 20. október næstkomandi.
Styrkur er námskeið sem er þátttakendum að kostnaðarlausu og engin fyrri reynsla af líkamsrækt er nauðsynleg. Áhersla verður lögð á líkamsrækt, sjálfsstyrkingu og markmiðasetningu ásamt því að kynnast nýju fólki. Leiðbeinendur námskeiðsins eru Jóna Helga og Margrét, verkefnastjórar hjá Hinu húsinu, og eru þær spenntar að taka á móti hópnum.
Hreyfing og góð samvera tvisvar í viku
Á þriðjudögum klukkan 17-19 hittist hópurinn í Hinu húsinu með Jónu og Margréti. Áhersla er lögð á að skapa styðjandi, jákvætt og skemmtilegt andrúmsloft. Hópurinn fer í ýmiss konar hópefli, æfingar og leiki og borðar saman kvöldmat.
Á fimmtudögum klukkan 18-19 æfir hópurinn í líkamsræktarstöðinni Katla Fitness í Urðarhvarfi undir handleiðslu Siggu Fanndal, einkaþjálfara og íþróttafræðings.
Hvað segja fyrri þátttakendur?
Hitt húsið hefur mikla reynslu af starfi með ungu fólki og hefur haldið fjölmörg námskeið í gegnum tíðina. Þátttakendur á sambærilegum námskeiðum hafa meðal annars sagt:
„Mér fannst skemmtilegast á námskeiðinu að hitta annað fólk og kynnast öðru fólki.“
Við mælum með STYRK fyrir öll ungmenni sem hafa áhuga á að koma sér af stað í hreyfingu og kynnast skemmtilegum hópi af ungu fólki!
Skráning er opin núna – takmörkuð pláss í boði
Námskeiðið er styrkt af Lýðheilsusjóði Landlæknis. Fyrirspurnir berist á netfangið jafningi@reykjavik.is eða í síma 411-5519/411-1695. .