STYRKUR – ókeypis námskeið fyrir ungt fólk í Hinu húsinu

Ungt fólk á ferð í miðborginni.

Styrkur er skemmtilegt sex vikna líkamsræktar námskeið fyrir ungt fólk á aldrinum 16-20 ára sem hefst í Hinu húsinu, miðstöð ungs fólks, þriðjudaginn 20. október næstkomandi.

Styrkur er námskeið sem er þátttakendum að kostnaðarlausu og engin fyrri reynsla af líkamsrækt er nauðsynleg. Áhersla verður lögð á líkamsrækt, sjálfsstyrkingu og markmiðasetningu ásamt því að kynnast nýju fólki. Leiðbeinendur námskeiðsins eru Jóna Helga og Margrét, verkefnastjórar hjá Hinu húsinu, og eru þær spenntar að taka á móti hópnum. 

Jóna og Magga leiðbeinendur á námskeiðinu
Jón Helga og Margrét, sem verða leiðbeinendur á námskeiðinu Styrkur.

Hreyfing og góð samvera tvisvar í viku

Á þriðjudögum klukkan 17-19 hittist hópurinn í Hinu húsinu með Jónu og Margréti. Áhersla er lögð á að skapa styðjandi, jákvætt og skemmtilegt andrúmsloft. Hópurinn fer í ýmiss konar hópefli, æfingar og leiki og borðar saman kvöldmat.

Á fimmtudögum klukkan 18-19 æfir hópurinn í líkamsræktarstöðinni Katla Fitness í Urðarhvarfi undir handleiðslu Siggu Fanndal, einkaþjálfara og íþróttafræðings.

Styrkur - auglýsingaplakat fyrir námskeiðið í Hinu Húsinu

Hvað segja fyrri þátttakendur?

Hitt húsið hefur mikla reynslu af starfi með ungu fólki og hefur haldið fjölmörg námskeið í gegnum tíðina. Þátttakendur á sambærilegum námskeiðum hafa meðal annars sagt:

„Mér fannst skemmtilegast á námskeiðinu að hitta annað fólk og kynnast öðru fólki.“

Við mælum með STYRK fyrir öll ungmenni sem hafa áhuga á að koma sér af stað í hreyfingu og kynnast skemmtilegum hópi af ungu fólki!

Skráning er opin núna – takmörkuð pláss í boði

Námskeiðið er styrkt af Lýðheilsusjóði Landlæknis. Fyrirspurnir berist á netfangið jafningi@reykjavik.is eða í síma 411-5519/411-1695. .