Vesturbæjarlaug opnar á ný eftir viðhaldslokun
Vesturbæjarlaug opnar á ný kl. 15.00 í dag, föstudaginn 3. júlí, að lokinni viðhaldslokun sem staðið hefur yfir frá 23. júní.
Viðhaldsframkvæmdir hafa gengið vel. Opnun laugarinnar var þó frestað um nokkra daga til að tryggja að málning á barnalauginni hefði náð fullnægjandi þurrki áður en vatni var hleypt á hana.
Öll aðstaða opin en aðallaugin nær ekki fullum hita fyrr en á morgun
Byrjað var að fylla aðallaugina síðdegis í gær. Þótt laugin sé nú full tekur tíma að hita vatnið og verður aðallaugin því um 12°C við opnun í dag. Gert er ráð fyrir að hún verði komin í hefðbundið hitastig á morgun, laugardaginn 4. júlí.
Barnalaugin hefur hins vegar náð eðlilegu hitastigi og verður tilbúin til notkunar við opnun.
Framkvæmdum við kalda pottinn er einnig lokið, þrátt fyrir að upphaflega hafi verið gert ráð fyrir að þær tækju nokkra daga til viðbótar. Við opnun laugarinnar í dag verða því barnalaug, heitir pottar, kaldi potturinn, eimbað og sánur öll opin gestum. Aðallaugin verður einnig opin en ekki í réttu hitastigi.
Við þökkum gestum fyrir sýndan skilning og þolinmæði meðan á framkvæmdunum stóð og hlökkum til að taka á móti þeim á ný.
Nánari upplýsingar um sundlaugar Reykjavíkurborgar og opnunartíma þeirra.