Skrifað undir samkomulag við Víking
Í dag var undirritað samkomulag Reykjavíkurborgar og Knattspyrnufélagsins Víkings um yfirfærslu eignarhalds íþróttamannvirkja Víkings til Reykjavíkurborgar og tímalínu uppbyggingar á athafnasvæði félagsins.
Samningurinn var undirritaður af Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra og Birni Einarssyni formanni Víkings í Víkingsheimilinu.
Samkomulagið felur í sér langtímasýn fyrir aðstöðu Víkings í Stjörnugróf og í Safamýri. Eignarhald núverandi íþróttamannvirkja Víkings við Traðarland 1 færist til Reykjavíkurborgar, sem tekur þar með að sér viðhald og frekari uppbyggingu.