Ný aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni
Borgarráð hefur samþykkt nýja aðgerðaáætlun Reykjavíkur um líffræðilega fjölbreytni til ársins 2030 sem ber heitið Náttúrulega Reykjavík! Í henni eru 80 fjölbreyttar aðgerðir sem styrkja lífríki borgarinnar, græn svæði, lífsgæði íbúa og auka áfallaþol með breyttu loftslagi.
Í áætluninni kennir ýmissa grasa, til dæmis er stefnt að því að klára friðlýsingarferli í Skerjafirði, fjölga hólmum á Tjörninni til þess að styrkja fuglalíf, fjölga trjám í borgarlandinu, börnum í grunnskólum verði tryggð kennsla úti í náttúrunni, lífríki borgarinnar verði áfram vaktað og unnið verði gegn ágengum tegundum svo fátt eitt sé nefnt.
Áætlunin byggir á gildandi stefnu Reykjavíkur um líffræðilega fjölbreytni frá árinu 2016 en Reykjavík var fyrsta höfuðborgin á Norðurlöndum til að samþykkja slíka stefnu.
Samráð við íbúa og hagaðila
Við gerð áætlunarinnar var boðað til vinnufundar með hagaðilum, fagstofnunum og félagasamtökum. Einnig voru drög að aðgerðaáætluninni sett í samráðsgátt Reykjavíkurborgar þar sem íbúum, hagaðilum og öllum áhugasömum gafst tækifæri til að kynna sér málið og koma með athugasemdir.
Sömuleiðis var afstaða íbúa til valinna verkefna könnuð og þeir beðnir um að forgangsraða aðgerðum. Meðal niðurstaðna voru þær að 60% íbúa eru jákvæð fyrir verkefninu Viljandi villt og á það við um alla borgarhluta Reykjavíkur. Þá var aðgengi íbúa að grænum svæðum kannað en rúmlega 80% þeirra telja sig eiga auðvelt með að komast á skipulagt græn svæði.
Mikilvægt umhverfismál
Líffræðileg fjölbreytni og velferð hennar er með allra mikilvægustu umhverfismálum samtímans og þar hafa sveitarfélög mikið að segja í gegnum skipulagsáætlanir, fræðslu, aðgerðir í nærumhverfi íbúa, leyfisveitingar og þannig mætti áfram telja.
Með áætluninni innleiðir Reykjavíkurborg markmið sín úr Náttúruborgarsamningi Berlínar (Berlin Urban Nature Pact) og tryggir að stærsta sveitarfélag landsins taki þátt í markmiðum úr nýrri stefnu Íslands í málaflokknum. Þá samræmist áætlunin þeim skuldbindingum sem Ísland hefur samþykkt á alþjóðlegum vettvangi. Stefna Reykjavíkur um líffræðilega fjölbreytni spannar breitt svið og hefur skírskotun í ýmsa málaflokka.