Líffræðileg fjölbreytni

Líffræðileg fjölbreytni vísar til margbreytileika lífríkisins í umhverfi fólks, allt frá einstaklingum og stofnum einstakra tegunda til lífsamfélaga og vistkerfa. Þessi fjölbreytni er undirstaða náttúruauðlinda, sem eru lífsnauðsynlegar fyrir afkomu manna en mótar einnig lífsgæði og hamingju

Lífverurnar í borginni

Reykvíkingar deila borg sinni með ótal lífverum, allt frá álftum til hunangsflugna og birkitrjám til kuðungakrabba. Innan borgarmarkanna finnast mörg sérstæð, verðmæt og viðkvæm vistkerfi, til dæmis leirur og þangfjörur sem eru mikilvæg búsvæði vaðfugla og sjávarhryggleysingja, straumvötn sem hýsa laxa- og silungastofna, mosavaxin hraun, mólendi og lundavörp í eyjum. 

Hið byggða umhverfi er einnig auðugt af lífi og borgarbúar eru í daglegu samneyti við lífverur til dæmis syngjandi garðfugla. Þá skiptir návist við gróskumikinn og skjólveitandi gróður borgarbúa miklu máli.

 

Forsíðumynd af teiknaðri önd

Aðgerðaáætlun

Aðgerðaáætlun Reykjavíkur um líffræðilega fjölbreytni til ársins 2030 ber heitið Náttúrulega Reykjavík! Í henni eru 80 fjölbreyttar aðgerðir sem styrkja lífríki borgarinnar, græn svæði, lífsgæði íbúa og auka áfallaþol með breyttu loftslagi.

Í áætluninni kennir ýmissa grasa, til dæmis er stefnt að því að klára friðlýsingarferli í Skerjafirði, fjölga hólmum á Tjörninni til þess að styrkja fuglalíf, fjölga trjám í borgarlandinu, börnum í grunnskólum verði tryggð kennsla úti í náttúrunni, lífríki borgarinnar verði áfram vaktað og unnið verði gegn ágengum tegundum svo fátt eitt sé nefnt.

Mikilvægt umhverfismál

Líffræðileg fjölbreytni og velferð hennar er með allra mikilvægustu umhverfismálum samtímans og þar hafa sveitarfélög mikið að segja í gegnum skipulagsáætlanir, fræðslu, aðgerðir í nærumhverfi íbúa, leyfisveitingar og þannig mætti áfram telja. 

Með áætluninni innleiðir Reykjavíkurborg markmið sín úr Náttúruborgarsamningi Berlínar (Berlin Urban Nature Pact) og tryggir að stærsta sveitarfélag landsins taki þátt í markmiðum úr nýrri stefnu Íslands í málaflokknum. Þá samræmist áætlunin þeim skuldbindingum sem Ísland hefur samþykkt á alþjóðlegum vettvangi. Stefna Reykjavíkur um líffræðilega fjölbreytni spannar breitt svið og hefur skírskotun í ýmsa málaflokka. 

 

Sex meginmarkmið

Stefna Reykjavíkurborgar um líffræðilega fjölbreytni var samþykkt í janúar 2016. Í stefnunni eru skilgreind markmið og lykilverkefni sem miða að því að hlúa að líffræðilegri fjölbreytni - bæði innan og utan borgarmarka. 

Stefnan byggist á sex meginmarkmiðum:

  • Að upplýsingar um líffræðilega fjölbreytni í Reykjavík séu skráðar og greindar.
  • Að búsvæði í borginni séu vernduð og þau efld.
  • Að unnið sé gegn helstu ógnum líffræðilegrar fjölbreytni.
  • Að fræðsla um líffræðilega fjölbreytni fari fram með víðtækum hætti.
  • Að lögð sé áhersla á líffræðilega fjölbreytni í allri starfsemi Reykjavíkurborgar.
  • Að borgin sé leiðandi á því sviði.

Náttúruborgin

Bæklingur um Náttúruborgina kom út á Degi íslenskrar tungu 16. september 2019.

Teikning af húsi sem er eins og blómapottur í laginu og kona vökvar gróður á þakinu