Hugmyndasamkeppni um Kjarnasamfélög framlengd
Búið er að framlengja umsóknarfrest vegna þátttöku í hugmyndasamkeppni um Kjarnasamfélög. Nýr frestur til að skila inn umsóknum er 16. júní kl. 23:59. Sótt er um á útboðsvef Reykjavíkur.
Verkefnið snýst um að þróa nýjar leiðir í íbúðauppbyggingu þar sem áhersla er lögð á aukið samfélag, samnýtingu rýma og fjölbreytt búsetuform. Með verkefninu er leitast við að skapa íbúðahverfi þar sem íbúar hafa meiri áhrif á mótun nærumhverfis síns og sameiginleg rými gegna stærra hlutverki en almennt gerist í hefðbundnum fjölbýlishúsum.
Mikil áhugi hefur verið á verkefninu frá því það var kynnt á húsnæðisfundi borgarstjóra í lok mars og er framlenging frestsins liður í því að gefa áhugasömum teymum betri tíma til að undirbúa umsóknir sínar.
Fimm manna dómnefnd
Umsóknir verða metnar af fimm manna dómnefnd. Þrír fulltrúar koma frá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar en það eru þau Þórhildur Bryndís Guðmundsdóttir, Hjördís Sóley Sigurðardóttir og Margrét Lára Baldursdóttir. Utanaðkomandi sérfræðingar í dómnefnd eru þau Anna María Bogadóttir og Dagur Eggertsson. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úr valferlinu verði kynntar um miðjan ágúst.
Útboðsvefur Reykjavíkurborgar - umsóknarform fyrir kjarnasamfélög